Hinn alþjóðlegi svefndagur 2014: Góð ráð við svefnleysi
Í dag, þann 14 mars er alþjóðlegur dagur svefnsins (World sleep day – http://worldsleepday.org/) en tilgangurinn með deginum er að minna á hversu mikilvægur svefninn er fyrir andlega og líkamlega heilsu. Staðreyndin er sú að svefntími okkar er alltaf að styttast og svefnvandamál eru gríðarlega algeng í nútímasamfélagi. Svefninn er grunnstoð heilsu líkt og góð næring og reglubundin hreyfing og því er afar mikilvægt að huga vel að svefninum og tileinka sér góðar svefnvenjur. í tilefni dagsins birtum við hér 10 mikilvæg svefnráð sem gott er að fara eftir.
- Hafðu reglu á svefntímum. Reyndu að fara alltaf á sama tíma í rúmið á kvöldin og á fætur á morgnana, jafnvel þó þú hafir sofnað seint eða sofið lítið nóttina áður.
- Stundaðu reglubundna hreyfingu. Reglubundin hreyfing eykur svefngæði. Forðast skal þó mikla hreyfingu skemur en þremur tímum fyrir háttatíma.
- Borðaðu reglulega og ekki fara svangur/svöng að sofa. Hungur getur truflað svefninn en létt snarl á kvöldin getur verið skynsamlegt. Forðast skal þó þungar máltíðir rétt fyrir svefninn.
- Neyttu koffeins í hófi. Ef þú átt erfitt með svefn er æskilegt að sleppa kaffidrykkju eftir klukkan 14.00 á daginn og að forðast einnig aðra koffeinneyslu, t.d gos- og orkudrykki.
- Dragðu úr áfengsneyslu. Áfengisneysla á kvöldin veldur grynnri svefni og auknum líkum á að vakna endurtekið yfir nóttina.
- Forðastu tölvunotkun og sjónvarpsgláp klukkustund fyrir svefninn. Ekki er æskilegt að horfa á sjónvarp eða vera í tölvunni alveg fram að háttatíma. Mikilvægt er að koma sér upp rólegri kvöldrútínu og gera líkama og sál tilbúin fyrir svefninn.
- Ekki reyna að sofna. Ef þú áttt erfitt með að sofna er ekki æskilegt að liggja í rúminu tímunum saman og reyna að sofna. Það gerir vandamálið einungis verra. Farðu frekar framúr og gerðu eitthvað rólegt frammi í skamma stund og farðu svo aftur í rúmið þegar þig syfjar á ný.
- Notaðu rúmið eingöngu fyrir svefn og kynlíf. Þetta hjálpar líkama og sál að tengja rúmið og svefnherbergið við syfju, ró og svefn.
- Feldu klukkuna. Það að fylgjast með klukkunni þegar verið er að reyna að sofna getur valdið pirringi, kvíða og gremju sem hefur neikvæð áhrif á svefninn
- Forðastu blund yfir daginn. Þó það geti verið freistandi að halla sér í smá stund á daginn eftir erfiða nótt þá er það ekki ráðlagt þar sem blundur getur haft neikvæð áhrif á nætursvefninn.