Erla Björnsdóttir
Framkvæmdastjóri
Erla Björnsdóttir er stofnandi og framkvæmdastjóri Betri svefns. Erla lauk B.A prófi í sálfræði frá Háskóla Íslands 2007 og kandídatsprófi frá Háskólanum í Árósum 2009. Erla lauk svo doktorsprófi í líf-og læknavísindum frá Háskóla Íslands í janúar 2015. Í doktorsnámi sínu rannsakaði Erla svefnleysi, andlega líðan og lífsgæði hjá sjúklingum með kæfisvefn.
Erla hefur sérhæft sig í hugrænni atferlismeðferð við svefnleysi (HAM-S) og vinnur að rannsóknum á því sviði ásamt samstarfsmönnum í Evrópu og Bandaríkjunum. Erla hefur birt fjölda greina í erlendum ritrýndum tímaritum og einnig skrifað um svefn á innlendum vettvangi. Erla starfar einnig við kennslu og se leiðbeiniandi BS og meistaranema í sálfræði við Háskólann í Reykjavík.
Erla hefur haldið fjölda fyrlestra og námskeiða og má þar helst nefna fyrirlestra og fræðslu um svefn og svefnvenjur fyrir fyrirtæki og hópa ásamt því að vera með hópnámskeið við svefnleysi. Erla er einnig höfundur bókarinnar Svefn sem kom út í mars 2017 og barnabókarinnar Svefnfiðrildin sem kom út árið 2020.
Hægt er að hafa samband við Erlu í gegnum netfangið erla@betrisvefn.is
Inga Rún Björnsdóttir
Sálfræðingur
Inga Rún Björnsdóttir er sálfræðingur hjá Betri svefni. Hún lauk B.A. prófi í sálfræði frá Háskóla Íslands 2005 og flutti þá til Kaupmannahafnar þar sem hún dvaldi í rúman áratug við nám og störf. Inga lauk kandidatsprófi frá Kaupmannahafnarháskóla árið 2015 og er með starfsleyfi frá Embætti Landlæknis til að starfa sem sálfræðingur. Faglegur bakgrunnur Ingu liggur innan taugasálfræði og klínískrar sálfræði. Í meistaraverkefninu skoðaði hún hugræna færni, hugræna endurhæfingu og andlega líðan fólks með taugasjúkdóminn Multiple Sclerosis. Inga starfaði um árabil sem sálfræðingur í taugasálfræðiþjónustu Landspítala, á endurhæfingardeild Grensáss, við taugasálfræðilegar athuganir, ráðgjöf og hugræna endurhæfingu fólks með hugrænan vanda. Inga starfar einnig sem stundakennari í klínískri taugasálfræði við Sálfræðideild Háskóla Íslands.
Inga hefur mikinn áhuga á mikilvægi svefns fyrir líkamlega og andlega heilsu. Hún heldur fyrirlestra um svefn fyrir fyrirtæki, vinnustaði, íþróttafélög, skóla og ýmis félagasamtök. Hún stýrir hópnámskeiðum Betri svefns, veitir einstaklingsmeðferð við svefnleysi og öðrum svefnvanda og sinnir einnig almennri svefnráðgjöf. Inga tekur einnig þátt í þróun á SheSleep, svefn-appi sem sniðið er að konum.
Inga hefur sótt vinnustofur í hugrænni atferlismeðferð við svefnleysi, HAM-S (e. Cognitive Behavioural Therapy for Insomnia, CBT-I) sem er sú meðferð sem klínískar leiðbeiningar mæla með sem fyrsta val þegar langvarandi svefnleysi er til staðar. Inga hefur sótt fjölmargar alþjóðlegar ráðstefnur á sviði taugasálfræði annars vegar og svefns hins vegar.
Inga er Jóga Nidra leiðbeinandi og hefur lokið I AM Yoga Nidra Professional Training hjá Kamini Desai. Jóga Nidra er leidd meðvituð djúpslökun sem skapar jafnvægi, dregur úr vöðvaspennu, minnkar streitu og bætir svefn. Jóga Nidra djúpslökun er því mjög góð fyrir þau sem glíma við svefnvanda. Inga stundar einnig jógakennaranám hjá Jógasetrinu 2024-2025.
Hægt er að hafa samband við Ingu og óska eftir viðtali með því að senda tölvupóst á netfangið inga@betrisvefn.is.
Einnig er hægt er að bóka viðtal í gegnum þennan hlekk á síðu Kara connect.
Sigurbirna (Birna) Hafliðadóttir
Meistaranemi í sálfræði
Birna lauk BS námi í Sálfræði við Háskólann í Reykjavík árið 2022. Hún hóf nám í Klínískri Sálfræði við Háskólann í Reykjavík sama ár og stefnir á útskrift vorið 2024. Lokaverkefni hennar snýr að samanburðarrannsókn á hugrænni atferlisnetmeðferð fyrir konur með frjósemisvanda. Birna hefur starfað við forritun frá 2004 og lauk BS í tölvunarfræði árið 2000 við Háskólann í Reykjavík.
Birna notar hugræna atferlismeðferð (HAM) sem aðal meðferðaraðferð. Áhugasvið hennar í meðferð eru meðal annars svefnvandi, kvíði, þunglyndi, tölvufíkn, lágt sjálfsmat og annar tilfinningavandi. Birna hefur mikinn áhuga að nýtingu tæknilausna á sviði sálfræðimeðferða.
Hægt er að bóka viðtöl hjá Birnu með því að senda tölvupóst á netfangið betrisvefn@betrisvefn.is eða birna@betrisvefn.is.
Ólafur Gylfason
Stjórnarformaður
Ólafur Gylfason hefur áratuga reynslu af því að koma lækningatækjum á markað og hefur sl. 27 ár leitt sölu- og markaðsstarf Össurar sem sérhæfir í lausnum sem auka hreyfigetu fólks með langvarandi hreyfihömlun. Ólafur bjó í 10 ár í Hollandi og leiddi starfsem Össurs í Evrópu á þeim tíma og flutti síðan til Kaliforníu og leiddi Ameríku starfsemi Össurar í sex ár. Í dag starfar hann í framkvæmdastjórn Össurar sem CCO (Chief Commercial Officer) með yfirumsjón yfir sölu-, þjónustu- og markaðssviði félagsins. Megin áhersla Ólafs hjá Betri svefni leiða markaðsstarf okkar á erlendum mörkuðum og vinna að því að koma okkar stafrænu lausnum á erlenda markaði. Ólafur gegnir hlutverki stjórnarformanns Betri svefns
Hildur Björnsdóttir
Ráðgjafi fyrirtækja
Hildur er kennari að mennt, með BA gráðu í spænsku og meistaragráðu í Evrópufræðum. Hildur býr yfir góðri tungumálakunnáttu og hefur víðtæka starfsreynslu, m.a. af fyrirtækjarekstri, leiðsögn, námskeiðahaldi og markaðssetningu á samfélagsmiðlum.
Hildur hefur umsjón með fyrirtækjaþjónustu Betri svefns. Hægt er að hafa samband við Hildi með því að senda póst á hildur@betrisvefn.is
Hálfdan Steinþórsson
Markaðs- og sölustjóri
Hálfdan Steinþórsson er einn af stofnendum Betri Svefns og situr í stjórn fyrirtækisins. Hálfdan lauk B.A prófi í viðskiptafræði frá Háskólanum á Bifröst árið 2009 þar sem hann lagði áherlsu á markaðs og fjölmiðlarannsóknir. Hann lagði einnig stund á meistaranám í Lögfræði við Háskólann í Reykjavík 2009-10. Hálfdan hefur komið að stofnum og rekstri fyrirtækja á sviði vildar og tryggðarlausna fyrir banka, greiðslukortafélög og símfélög. Einnig hefur Hálfdan sinnt ráðgjafastörfum hjá stærri fyrirtækjum í notkun vildarkerfa og meðhöndlun ganga ásamt því að hafa haldið fjölda fyrirlestra um nýsköpun og frumhugsun fyrir fyrirtæki og háskólanema.
Hálfdan er einn af stofnendum og framkvæmdarstjóri GOMOBILE ehf ásamt því að vera stofnandi og stjórnarformaður Vinnustofu Kjarvals
Alexander Aron Gylfason
Stafræn þróun
Alexander sér um stafræna þróun hjá Betri svefn.
Ólafur Hrafn Nielsen
Upplýsingatækni
Ólafur er með B.Sc. í tölvunarfræði frá Háskóla Íslands og M.Sc. tölvunarfræði fá Chalmers tækniháskólanum í Gautaborg. Hann hefur unnið við upplýsingatækni í tæp 20 ár og er með brennandi áhuga á hvernig hægt er að nýta tölvutækni til að auka lífsgæði og vellíðan einstaklinga. Ólafur sér um upplýsingatækni fyrir Betri svefn.
Gylfi Sigfússon
Fjármálasvið
Gylfi hefur verið mjög virkur í startup fyrirtækjum sem fjárfestir og leiðbeinandi og hefur leiðbeint fyrirtækjum á byrjunarstigum og í útrás. Gylfi hefur látið heilbrigði og vellíðan starfsfólks sig varða í sínu starfi og er meðvitaður um hversu nauðsynlegt er að greina áhrif svefns á vellíðan starfsfólks og hjálpa einstaklingum að átta sig á því að lausnirnar felast ekki alltaf í lyfjum heldur hugrænni atferlismeðferð. Gylfi var áður stjórnarformaður Betri Svefns en starfar nú sem yfirmaður fjármálasviðs.
Sören Berg
Læknir
Sören Berg er læknir sem hefur starfað við svefnrannsóknir í yfir 30 ár. Sören hefur setið í stjórn Betri svefns frá upphafi og verið virkur þátttakandi í uppbyggingu og stjórnun fyrirtækisins. Sören starfar í dag við svefnrannsóknir og ráðgjöf við Lovisenberg sjúkrahúsið í Oslo. Sören hefur gríðarlega mikla reynslu af svefnrannsóknum og hefur birt yfir 50 ritrýndar vísindagreinar.
Steindór Oddur Ellertsson
Læknir
Steindór er læknir sem útskrifaðist frá Háskóla Íslands í júní 2013. Steindór hefur góða þekkingu á svefnvandamálum í gegnum nám sitt og starf. Hann hefur að auki sett á laggirnar vefsíðu með kennsluefni fyrir þá sem hyggjast þreyta inntökupróf í læknisfræði. Steindór hefur góða tölvuþekkingu og hefur góða reynslu af miðlun kennsluefnis í vefformi ásamt tölfræðilegri úrvinnslu og birtingu gagna.
Steindór er hluti af stofnendahóp Betri svefns.
Gunnar Jóhannsson
Læknir
Gunnar er læknir sem útskrifaðist frá Háskóla Íslands í júní 2013. Gunnar hefur fengið góða innsýn í svefnvanda þjóðarinnar í gegnum starf sitt á heilsugæslu og þekkir vel þörfina fyrir gott aðgengi að árangursríkum úrræðum við langvarandi svefnleysi. Gunnar starfar í dag hjá Kerasis.
Gunnar er hluti af stofnendahóp Betri svefns.